Hem


Spakmæli

Gullkorn til hugleiðingar í dagsins önn - stöldrum við og hugleiðum...

Speki til hugleiðingar á vordögum...

Örlítil spök saga.
Ferðalangur kom þar að sem bóndi stóð í túni sínu. Þeir tóku tal saman. Ferðalangurinn sagðist vera að leita sér að þorpi til að setjast að í. "Segðu mér," spurði hann bóndann, "hvernig fólk er þarna í þorpinu framfrá?" "Hvernig fólk var í þorpinu þar sem þú bjóst?" spurði bóndinn. Það var upp til hópa leiðinlegt, uppáþrengjandi, afskiptasamt pakk!" Þá verð ég að hryggja þig, góði maður, að fólkið í þorpinu framfrá er alveg eins, þér mun ekki líða betur þar," sagði bóndi hugsi.
Og ferðalangurinn hélt sína leið.
Einhverju síðar kom þar annar maður og heilsaði bóndanum. Hann sagðist vilja flytja sig til og væri að leita sér að framtíðarbústað. "Hvernig fólk býr þarna í þorpinu framfrá?" spurði hann. "Hvernig var fólkið þar sem þú bjóst?" spurði bóndi. "Það var yfirleitt besta fólk, hjálpfúst, góðviljað, umhyggjusamt." "Þá get ég glatt þig með því að fólkið hér í þorpinu er einmitt þannig," sagði bóndinn og hló. "Þér á eftir að líða þar vel!"

(Úr "stories for the Journey" og er í bókinni Orð í gleði eftir Karl Sigurbjörnsson en sú litla bók var metsölubók heima á Íslandi í febrúar og bókin fæst á bókaborði safnaðarins.)

Albert Einstein sagði:
"Það er hægt að lifa á tvennan hátt, annars vegar eins og engin kraftaverk væru til. Hins vegar eins og allt væri kraftaverk."

Franskur maður sagði:
"Lífið er spegill, allt verður fallegra þegar þú brosir."

Laura Randolph sagði:
"Í hverjum karli er konungur.
Í hverri konu er drottning.
Tala til þeirra og þau koma í ljós."

Ef Guð ætti ísskáp
þá væru teikningarnar þínar á hurðinni.
Ef Guð ætti veski
þá væri mynd af þér í því.
Guð sendir þér blóm á hverju ári
og sólarupprás á hverjum morgni.
Hvenær sem þú vilt tala við hann,
þá hlustar hann.
Hann getur valið um að búa
hvar sem er í heiminum,
og hann vill búa í hjarta þínu.

(Þýtt úr "argument" og er að finna í bókinni
"Orð í gleði" eftir Karl Sigurbjörnsson.
Bókin er til á bókaborði safnaðarins)

...þessi spöku orð Móður Teresu:
Lífið er tækifæri, gríptu það.
Lífið er fegurð, dáðu hana.
Lífið er gjöf, njóttu hennar.
Lífið er draumur, láttu hann verða að veruleika.
Lífið er áskorun, taktu henni.
Lífið er skylda, gerðu hana
Lífið er leikur, leiktu hann.
Lífið er dýrmætt, gættu þess.
Lífið er auðlegð, varðveittu hana.
Lífið er kærleikur, gef þig honum á vald.
Lífið er loforð, láttu það rætast.
Lífið er sorg, sigraðu hana.
Lífið er söngur, syngdu hann!

... og ennfremur:

"Komdu fram við náunga þinn eins og þú vilt að hann komi fram við þig - og vertu fyrri til !! E.N. Westcott

"Alheimurinn er fullur af undrum en við erum svo vön þeim að við köllum þau hversdagshluti." H.C. Andersen

Stundum er gott að horfa á hið stóra samhengi lífsins, Pétur Gunnarssons segir í ljóði:
"Af jarðarinnar hálfu
byrja allir dagar fallega
þolinmóð snýst hún og snýst
með trén og höfin og vötnin
eyðimerkurnar og eldfjöllin
okkur tvö og ykkur hin
og öll dýrin."

Undarlegur er tíminn sem hleypur frá okkur... Einar Benediktsson orti:
"Stundin deyr og dvínar burt
sem dropi í straumaniðinn.
Öll vor sæla er annaðhvurt
óséð - eða liðin."

Já og þess mikilvægara er að grípa tækifærin, Dag Hammerskjöld sagði:
"Lít ekki um öxl og lát þig ekki dreyma um framtíðina. Hún getur ekki gefið þér hið liðna aftur né fullnægt lukkudraumum. Skylda þín og laun - örlög þín - eru hér og nú."

Orð Páls postula eru gott veganesti:
"Verið ávalt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúk um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.