Hem

Íslenska kirkjan í Svíþjóð (ÍKS)

Skýrsla sóknarnefndar fyrir árið 2009

Sóknarnefnd og helstu viðfangsefni

Aðalsafnaðarfundur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (ÍKS) var haldinn í Gautaborg sunnudaginn 25. janúar 2009. Ný sóknarnefnd var kjörin og skipti þannig með sér verkum á fyrsta sóknarnefndarfundi:
                      Guðný Ása Sveinsdóttir, formaður
                      Birna Ágústsdóttir, ritari
                      Rósa Jónasardóttir, gjaldkeri
Ingibjörg Gísladóttir, meðstjórnandi
                      Guðrún Bragadóttir, meðstjórnandi
                      Guðni Jónsson, meðstjórnandi  - nýkjörinn.

Þau Ingibjörg Pálsdóttir og Kristinn Kristinsson létu af störfum í sóknarnefnd og var þeim þakkað fyrir góð störf og þá sérstaklega Kristni, sem hafði setið í sóknarnefnd frá upphafi.

Milli aðalsafnaðarfunda hélt sóknarnefnd 10 sóknarnefndarfundi. Fundirnir voru haldnir í safnaðarheimili Västra Frölunda kirkju þar sem söfnuðurinn í Gautaborg og prestur hafa aðstöðu sína. Á fundunum hafa farið fram umræður um tilhögun og skipulagningu kirkjustarfsins, um samvinnuna við Sænsku kirkjuna og aðra styrktaraðila og um fjármál safnaðarins. Sóknarnefnd vinnur samkvæmt starfsreglum fyrir sóknarnefnd Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð, sem voru kynntar á aðalfundi 2009 og byggja á reglum fyrir sóknarnefndir á Íslandi en eru aðlagaðar aðstæðum hér.
ÍKS hefur tvisvar á árinu, vor og haust, sent frá sér um 2300 fréttabréf með upplýsingum um starf­semina til Íslendinga í Svíþjóð. Unnið er að því að fá sem flest Íslandstengd heimili inn á útsendingarskrá fréttabréfsins og leggur prestur töluverða vinnu í að hafa upp á nýjum einstaklingum og að viðhalda skránni. Auk þess auglýsir prestur kirkjustarfið reglulega í ”kirkjupósti” sem sendur er á þau tölvunetföng sem við vitum um á Gautaborgarsvæðinu. Í Stokk­hólmi, Uppsölum, á Skáni og víðar, eru sendar tilkynningar inn á þau samskipta­net sem eru fyrir hendi meðal Íslendinga á hverjum stað.
Heimasíða íslensku kirkjunnar í Svíþjóð (www.kirkjan.se) er upp­færð reglu­lega og umsjón með síðunni hefur Ágúst Einarsson.

Afmælishátíð
Helgina 12. och 13. september hélt Íslenska kirkjan í Svíþjóð upp á 15 ára starfsafmæli sitt. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur, kom í heimsókn og hafði fund med sóknarnefnd og tók þátt í námskeiði fyrir leiðtoga í barnastarfi frá íslensku kirkjunum á Norðurlöndum á laugardeginum. Sunnudag 13. september var haldin hátíðarguðsþjónusta í V Frölunda kirkju þar sem sr. Jón Dalbú prédikaði og sr. Arna Grétarsdóttir, prestur Íslendinga í Noregi og sr. Marjun Bæk, prestur Dana í Gautaborg þjónuðu fyrir utan prest Íslendinga í Svíþjóð, sr. Ágúst Einarsson. Íslenski kórinn í Gautaborg söng undir stjórn Kristins Jóhannessonar og Tuulu Jóhannesson, sem lék á orgel. Auk þess fengum við góða heimsókn frábærra hljóðfæraleikara sem komu langt að; Einar Sveinbjörnsson og Ingibjörg Guðlaugsdóttir léku á fiðlu og básúnu. Að messu lokinni var kirkjukaffi í safnaðarheimilinu og mættu þar fjöldi manns, m.a. margir þeir, sem hafa stutt söfnuðinn á þeim 15 árum, sem hann hefur starfað. Margar hendur hjálpuðust að við að gera þessa afmælishátíð hina glæsilegustu og ber þeim öllum þökk.

Guðsþjónustur, kirkjuskólar og fermingarfræðsla

Gautaborg. Guðsþjónustur hafa að jafnaði verið haldnar einu sinni í mánuði í Västra Frölunda kirkju (sept. til maí). Kirkjusókn hefur verið ágæt, yfirleitt um 60–70 manns og mun fleiri við hátíðarguðsþjónustur.
Kirkjuskóli er tvisvar í mánuði. Fyrir­komulagi barna­fræðslu í tengslum við guðsþjónustur hefur verið haldið áfram að nokkru. Börnin taka þátt í hluta guðsþjónustunnar en njóta síðan sérstakrar fræðslu. Með þessu fær öll fjöl­skyldan tækifæri til þess að njóta samverunnar í kringum helgihaldið.
Í Stokkhólmi eru íslenskar guðsþjónustur, kirkjuskólar og fjölskyldusamverur í Norsku kirkjunni. Barnastarfið í Stokkhólmi sem hófst haustið 2008 var í safnaðarheimili í Danderyd og guðsþjónustur í Finnsku kirkjunni. Að hafa kirkjuskóla og guðsþjónustur á 2 ólíkum stöðum reyndist ekki vel og því var gott að finna staðsetningu sem hentaði fyrir hvorttveggja. Finnsku kirkjunni í Stokkhólmi þökkum við margra ára samvinnu og gestrisni. Þar höfum við haft guðsþjónustur og íslenskur kór fengið inni endurgjaldslaust í mörg ár. Í Norsku kirkjunni fáum við einnig góðar móttökur sem við erum þakklát fyrir, en eðlilegra greiðum við þar sanngjarna leigu fyrir mjög góða aðstöðu. Guðsþjónustur, kirkjuskóli og fjölskyldusamverur eru í góðri samvinnu við Íslendingafélagið í Stokkhólmi sem m.a. auglýsir starfsemina og sér um kirkjukaffi. Í jólaguðsþjónustu og á jólaballi 4 sd. í aðventu mættu 130 manns og það er metþátttaka í guðsþjónustu og félagslífi í Stokkhólmi.
Í Uppsölum var kirkjuskóli annan hvern laugardag í Tunabergskirkjunni. Þar var vorguðsþjónusta í apríl og aðventuguðsþjónusta í desember hvorttveggja tiltölulega nýir þættir í starfinu í Uppsölum og mælist vel fyrir.
Í Lundivar kirkjuskóli annan hvern laugardag í St. Hans kirkju. Jólasamveru kirkjuskólans sóttu 180 manns og er það metþáttaka.  Páskaguðsþjónusta var í apríl í Arlövkirkju í samvinnu við Íslendingafélagið í Malmö og jólahelgistund í St Hans kirkju í Lundi á Þorláksmessu. Íslenski kórinn í Lundi söng í guðsþjónustunum.
Í Skövde var haldin skírnar- og fermingarguðsþjónusta 7. júní 2009.
Í Helsinki í Finnlandi var guðsþjónusta um miðjan apríl í kapellu Dómkirkjunnar. Íslendingafélagið í Helsinki hefur óskað eftir guðsþjónustu einu sinni á ári og Biskupsstofa greiðir ferðakostnað.
Fermingarfræðslan var með hefðbundnu sniði árið 2009. Fermingar­búðir voru haldnar í Åh stiftsgård 8.-10. maí þar sem 12 börn frá Svíþjóð auk álíka hóps frá Noregi voru mætt. Leiðbeinendur voru prestarnir Ágúst Einarsson og Arna Grétarsdóttir auk leiðtoga. Í haust hóf nýr hópur frá Svíþjóð og Noregi fermingarfræðslu með samveru í Åh stiftsgård dagana 25.-27. september og nú eru 14 unglingar í fermingarhópi vetr­arins. Milli fermingarbúða lesa ungmennin íslenska kennslubók í fermingarfræðum og leysa reglulega verkefni í tölvusamskiptum við sóknarprestinn. Auk þess er boðið upp á fræðslutíma eftir því sem við verður komið. Einnig sækja ung­mennin guðsþjónustur minnst mánaðarlega í heima­byggð sinni.

Barnastarfið er mikilvægur þáttur í safnaðarstarfinu og er mjög ánægjulegt að það skuli vera öflugt og vaxandi. Söfnuðurinn hefur í öllu þessu starfi notið hjálpar duglegra og áhugasamra leiðtoga sem við viljum þakka mjög góð störf.

Önnur starfsemi og viðburðir
Í Gautaborg:
Kyrrðarstund. Um miðjan mars var boðað til kvöldstundar: ”Kyrrð, kaffi og ljóð” sem sama formi og 2008, þ.e.a.s með stuttri helgistund í kirkjunni og síðan kaffi og ljóðalestri.
Vorhátíð í Slottskógi var haldið með hefðbundnum hætti um miðjan maí. Hátíðin markaði lok kirkjuskólastarfs í Gautaborg.
Fræðslufundir. Undanfarin ár höfum við haldið fræðslufundi og námskeið í samráði við leikmannaskóla Þjóðkirkjunnar. Leikmannaskólinn hefur borgað ferðakostnað fyrirlesara frá Íslandi og við séð um uppihald. Nú varð rof í þessari hefð vegna sparnaðar í kjölfar gengishruns á Íslandi. Í stað þess að láta þetta falla niður ákváðum við að kalla til íslenskan fyrirlesara sem búsettur var í Uppsölum. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir kom og flutti fyrirlestur um helgisiði undir yfirskriftinni „Oblátur og freyðibað“.
Á haustdögum efndum við til annars fyrirlestur og nú í umsjón ljóðskálds úr okkar hópi hér í Gautaborg, Kristín Bjarnadóttir kom og flutti ferðasögu í máli og myndum frá ferð sinni til Kamódíu sem hún nefndi „Allt annað líf“.
Sú nýbreyttni var viðhöfð að báðir fyrirlestrarnir voru í safnaðarheimili V Frölunda á laugardagsmorgnum og samhliða var skipulögð dagskrá fyrir börnin sem unglingar í söfnuðinum önnuðust. Mæltist þetta mjög vel fyrir og fyrirlestrarnir afar vel sóttir.
17. júní hátíð var haldin á flötinni fyrir utan V Frölunda kirkju í blíðskaparveðri. Mættu þar fjölmargar fjölskyldur og nutu börnin leikja og fullorðna fólkið þess að hittast.
Leiðtoganámskeið fyrir fólk í íslensku barnastarfi á Norðurlöndum var haldið í sambandi við hátíðarhöld vegna 15 ára afmælis Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð. Biskupsstofa á Íslandi styður hvert haust slíkt námskeið með því að senda sérstakan leiðbeinenda. Þátttakendur voru 8 frá Svíþjóð og 12 frá hinum Norðurlöndunum og tókst námskeiðið afar vel.
 Samkirkjulegt starf. Í október tókum við að venju þátt í árlegri samkirkjulegri messu með erlendum söfnuðum í Gautaborg. Þar sameinast dönsku, norsku, þýsku, finnsku, ensku og eistnesku söfn­uðirnir um helgihald.  
Jólasamverur fyrir alla fjölskylduna voru haldnar í Gautaborg, Lundi, Uppsölum og Stokkhólmi í tengslum við kirkjuskóla. Þessar samkomur voru afar vel sóttar, samtals yfir 500 manns, börn með foreldrum og mæltust vel fyrir.
Leshringur um bókmenntir undir stjórn Ágústs Einarssonar hefur haldið áfram að hittast reglulega.
Sóknarprestur hefur samvinnu við Gídeonfélagið á Íslandi og afhenti ung­lingum í fermingafræðslu Nýja testamenti að gjöf.  

Húsnæði

Skrifstofa prests, guðsþjónustur, barnastarf, kóræfingar, ýmsar sam­komur og fundir á vegum safnaðarins fá inni í Gautaborg hjá Västra Frölunda församling eins og síðastliðin ár, samstarf sem við metum mikils.
Á Skáni, í Stokkhólmi og Uppsölum höfum við notið gestrisni sænsku kirkjunnar þar sem kirkjuskóli og helgistundir hafa fengið inni í kirkjum og safnaðarheimilum.  

Kirkjutónlist

Íslenski kórinn í Gautaborg fær fjárhagsstuðning frá ÍKS fyrir að leiða kirkjusönginn. Í því felst að hafa forsöng í almennum safnaðarsöng og að flytja stólverk í hverri messu. Seth-Reino Ekström, kórstjóri og organisti, starfaði vorið 2009 en á haustdögum tóku þau Kristinn og Tuula Jóhannesson aftur við stjórn kórs og kirkjutónlistar eftir árs fjarveru.  
Á aðventuhátíðinni í byrjun desember var að venju áhersla á fjölbreyttan tónlistarflutning og söng Íslenski Kórinn þar ásamt fleiri aðilum, ungum sem eldri.
Í Stokkhólmi hefur ÍSÍS-kórinn leitt kirkjutónlistina undir stjórn Brynju Guðmunds­dóttur undanfarin ár. Vor og haust voru gerðar tilraunir til að hefja æfingar en vegna ónógrar þátttöku var jafnharðan hætt við þannig að því miður enginn kór var starfandi í Stokkhólmi á árinu.
Íslenski kórinn í Lundi undir stjórn Huldu Birnu Guðmundsdóttur hefur tekið þátt í guðsþjónustum á Skáni eins og að ofan greinir.
Það er full ástæða að undirstrika, að það er bæði kórum og kirkju hagur að því að sem best og mest samstarf sé þeirra á milli. Það er reynsla margra kóra og kórstjórnenda að kirkjan sé góður bakhjarl í starfseminni og kirkjustarf yrði stórum fátækara ef ekki kæmi til samvinna við gott tónlistarfólk.

Sálgæsla og önnur félagsleg aðstoð

Söfnuðurinn leggur á það áherslu að unnt sé að veita liðssinni öllum þeim sem á slíku þurfa að halda, ungum sem öldnum. Í Svíþjóð búa nú meira 6 þúsund Íslendingar og er þörfin fyrir slíkt því mikil og jöfn. Á síðustu árum hafa komið upp ýmis og marg­vísleg tilvik sem hafa fært okkur heim sanninn um nauð­syn slíkrar þjónustu fyrir þennan dreifða hóp. Presturinn er ætíð til staðar til sálgæslu og aðstoðar, t.d. þegar andlát eða aðra erfiðleika ber að höndum.
Sóknarnefnd hefur gert einfalda áfallahjálparáætlun til að styðjast við ef alvarlegt slys eða áfall yrði, þar sem Íslendingar væru beint eða óbeint viðriðnir. Sóknarnefnd getur aðstoðað stofnanir og aðila í sænsku samfélagi, sem hafa aðalhlutverk við slíkar aðstæður. Þar er t.d. átt við hjálp með tungumálið og þekkingu á íslenskum aðstæðum fyrir utan aðstoð eftir þörfum og óskum.
Fólk kemur í auknum mæli á skrifstofu prests með hin ýmsu mál til úrlausnar og presturinn heimsækir þá er þess óska. Þetta gildir bæði um Gautaborg og eins í sam­bandi við ferðir prests um aðra hluta Svíþjóðar. Sænska sjúkrahúskirkjan og sendiráð Íslands benda á þjónustu íslenska prestsins og óskir berast frá Íslandi um aðstoð við sjúklinga sem hingað koma í aðgerðir.
Vert er að hvetja fólk til þess að vera ófeimið við að leita til prestsins bæði sjálfs sín vegna og annarra sem hugsanlega þætti vænt um að fá heimsókn og aðstoð prests.
Skírnum hefur töluvert fjölgað og sama gildir um önnur embættis­verk. Er þá einnig ótalinn sá fjöldi barna og ungmenna sem nýtur kirkju­skóla- og fermingarfræðslu prestsins.

Tengslin við Íslensku þjóðkirkjuna

Íslenska kirkjan í Svíþjóð miðar starfshætti sína við starfsemi móðurkirkjunnar heima á Íslandi. Safnaðarnefndin vinnur með ”stefnu og starfsáherslur” sem taka mið af Þjóðkirkju Íslands en eru aðlöguð sérstökum aðstæðum okkar hér í Svíþjóð og sama gildir um starfsreglur sóknarnefndar sem áður er getið um.  Í barna- og unglingastarfi kirkjunnar sækjum við nær allt kennsluefni til útgáfufélags íslensku kirkjunnar, Skálholtsútgáfunnar.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prófastur, sem er tilsjónarmaður okkar fyrir hönd biskups, heimsótti söfnuðinn eins og áður segir í sambandi við 15 ára afmælishátíðina og hafði prófastur fund með presti og sóknarnefnd í þessari heimsókn sinni til að fá sem besta mynd af starfseminni og bera þær fregnir heim.  

Fjármál

Á starfsárinu hefur söfnuðurinn notið styrkja frá sænsku kirkjunni, kirkjumálasjóði íslensku Þjóðkirkjunnar, Göteborgs kyrkliga samfällighet og sænska ríkinu eins og sjá má á reikningum. Íslenska safnaðarstarfið er rekið fyrir þessi styrktarframlög og erum við afar þakklát þessum aðilum fyrir að gera starfsemi okkar mögulega. Kirkjan á Íslandi greiðir laun prests.
Eins og sjá má af ársreikningum hefur staða íslensku krónunnar rýrt mjög styrkinn frá Íslensku Þjóðkirkjunni, sem nemur andvirðum 100 íslenskra sóknargjalda. Í fyrra var hann um 76 þúsund skr, í ár rúmlega 49 þúsund. Vegna óöruggrar fjármálastöðu höfum við lagt okkur sérstaklega fram við að fara varlega med peninga safnaðarins án þess að skerða kjarnann í starfinu, sem er barnastarf, fermingarfræðsla og guðsþjónustur. Ákvörðun um að halda ekki fjölskyldumót 2009 þýddi sparnað uppá ca 30 þúsund skr. Hugmyndin var að taka það upp að nýju en með öðru sniði vorið 2010 en af því verður sennilega ekki vegna nýrra forsendna í kirkjustarfinu og síðar verður vikið að. Prestur hefur verið útsjónarsamur við að finna útgjaldaliði sem hægt var að draga niður. Allt þetta gerir að niðurstaða ársins er mjög jákvæð um ca 58 þúsund skr árið 2009 og þegar búið er að draga frá rekstrarhalla fyrri ára kr 19 þús. skr. þá eigum við kr. 39 þús. skr til góða inn í nýtt ár.
Fyrir utan daglegt rekstrarfé á söfnuðurinn tvo sjóði. Annars vegar er það ”menn­ingarsjóðurinn” sem er varasjóður safnaðarins en söfnuðurinn getur einnig notað til sérstakra verkefna. Hins vegar er ”minningarsjóðurinn Siggi” sem er hjálparsjóður kirkjustarfsins. Sóknarnefnd hefur umsjón með þessum sjóðum og tekið er með þakklæti á móti framlögum í sjóðina.

Framtíðin

Staða íslenska kirkjustarfsins erlendis hefur verið undir smásjá á Íslandi vegna fjármálaástandsins þar og hefur það valdið okkur nokkrum áhyggjum á árinu hvert stefndi. Þegar Sjúkratryggingar Íslands gerðu samning við Sahlgrenska International Care um að líffæraflutningar myndu flytjast til Gautaborgar frá Kaupmannahöfn og London drógum við andann léttar og vonuðum að það myndi tryggja framtíð íslenskrar prestþjónustu í Gautaborg.
En í byrjun janúar 2010 barst bréf frá biskupi Íslands, hr. Karli Sigurbjörnssyni, þess efnis að Kirkjuráð Íslands hafi á fundi sínum 10.-11. desember ákveðið að leggja af prestsþjónustu í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð. Þar kom fram að staða prests í Svíþjóð verði lögð niður  þann 1. apríl 2010. Biskup óskar þó eftir að prestur muni starfa í hlutastarfi aðeins lengur til að ljúka fermingum.
Biskup vonar að söfnuður geti áfram haldið uppi starfsemi og veitir fyrirheit um að Kirkjuráð veiti starfsstyrk eins og verið hefur til að hægt sé að halda úti barnastarfi og fermingarfræðslu. Biskup Íslands sendi okkur einnig afrit af bréfi sem hann sendi  til biskupsins í Gautaborg og erkibiskupsins í Svíþjóð. Þar er greint frá þessum óhjákvæmilega niðurskurði vegna gengishruns íslensku krónunnar og jafnframt er þetta bréf beiðni um aðstoð frá Sænsku kirkjunni til að styðja íslenska prestsembættið. Umræður um þetta munu vonandi komast í gang innan skamms.
Þetta voru sárar fréttir og setur óöryggi inn í alla skipulagningu næsta starfsárs. Safnaðarstarf án prests verður örðugt, barnastarf og fermingarfræðsla erfið án forystu prestsins. Sóknarnefnd vill gera sitt ítrasta til að reyna að fá fram nýja fjármögun til að þjónusta íslensks prests haldist hér á komandi árum.
Þann 7. janúar síðastliðinn vannst sá áfangasigur til enduruppbyggingar að presturinn okkar náði samkomulagi við Sjúkratryggingar Íslands um 40% starfshlutfall í þjónustu við íslenska sjúklinga sem koma á Sahlgrenska sjúkrahúsið. Þetta þykir okkur góð byrjun sem ætti að gera eftirleikinn auðveldari. Nú felst verkefnið í að fá stuðning við starf prests fyrir Íslensku kirkjuna sem nemur sem næst 60% starfshlutfalli en það gæfi okkur færi á að halda uppi öflugu starfi í þeim þáttum safnaðarstarfsins sem við teljum miklvægasta, s.s. barnastarfi, fermingarfræðslu, guðsþjónustum og sálgæslu.  
Eftir aðalsafnaðarfund kemur það í hlut nýrrar sóknarnefndar að skipuleggja íslenska safnaðarstarfið í ljósi nýrrar stöðu. Jákvæð viðbrögð hafa borist frá Sænsku kirkjunni við beiðni um meiri stuðning og samstarf. Á næstu vikum ætti að koma í ljós hvort takast megi að endurreisa að einhverju leyti prestsþjónustuna í þágu ÍKS í samvinnu Sænsku kirkjunnar og Íslensku Þjóðkirkjunnar.
Hugsanlega verður hægt að segja meiri fréttir af þeim málum á aðalsafnaðarfundi Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð 31. janúar n.k. Við vonum það besta og vinnum vongóð við lausn þessa máls.

Fyrir hönd sóknarnefndar 20. janúar 2010

Guðný Ása Sveinsdóttir

 


Krefst að Adobe Reader er uppsettur á tölvunni. Ýtið: til að sækja forritð. Það er til afnota endurgjaldslaust.