| Fréttabréf
á PDF fomi: Vor2006;
Haust2005; Vor2005;
Haust 2004; Vor
2004. Ávarp Kæru Íslendingar í Svíþjóð! Gleðilegt
nýtt ár! Í upphafi nýs árs eru viðsjárverðir
tímar um víða veröld. Fregnir af hörmungum stríðsátaka
berast okkur til eyrna frá botni Miðjarðarhafs og á Íslandi
er tekist á við afleiðingar efnahagshrunsins. Við erum uggandi
um horfurnar fyrir einstaklinga, fjölskyldur og þjóðarbú
nær og fjær. Þetta umrót hlýtur að kalla
á endurskoðun allra gilda og þeirra hugmynda sem við höfum
um lífið og tilveruna. Nú sem aldrei fyrr er þörf
á að hver einstaklingur leggi sitt af mörkum til að bæta
mannlífið. Það er ljóst að friður, frelsi
og réttlæti næst ekki fram baráttulaust. Þörfin
er rík fyrir gott siðferði, kærleika og umhyggju. Leggjum
okkar af mörkum til að efla þessi góðu gildi og rétta
einstaklingum í neyð hjálparhönd. Enn á ný
sendir íslenska kirkjustarfið fréttabréf sitt inn á
þau ríflega 2000 heimili er við höfum á skrá
í Svíþjóð. Reglulegt íslenskt guðsþjónustuhald
og kirkjuskólastarf er bundið við þrjá stærstu
þéttbýliskjarna Svíþjóðar, en efnt
er til samfunda á fleiri stöðum í samvinnu við heimafólk
eftir því sem tilefnin gefast. Verið ófeimin við að
hafa samband og viðra hugmyndir. Bestu kveðjur, Ágúst
Einarsson Símatími sóknarprests er á skrifstofu
mán., þri., og fim. kl. 10-12 og viðtöl eftir samkomulagi.
Skrifstofus. 031-704 58 91 og 070-286 39 69. Skrifstofa prests og íslensks
safnaðarstarfs er í Gautaborg, póstfang: Västra Frölunda
kyrka, Frölunda Kyrkogata 2, 421 47 V. Frölunda. Heimasíða
kirkjunnar er á www.kirkjan.se - sjá einnig http://kirkjan.is/svithjod/ Sóknarnefnd.
Formaður er Guðný Ása Sveinsdóttir, netfang hennar
er gudny.sveinsdottir@bredband2.com og sími 031-29 73 82.
Guðsþjónustur
í Gautaborg Á vormisseri verða guðsþjónustur
í Västra Frölundakirkju sem hér segir: 25. jan.
kl. 14.00 Aðalfundur eftir guðsþj. 22. febr. kl. 14.00 22.
mars kl. 14.00 26. apríl kl. 14.00 31. maí kl. 14.00 Hvítasunnudagur
- ferming Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn
Seth-Reino Eksröm sem jafnframt er organisti. Barnastund og leikaðstaða
er í tengslum við helgihaldið og smábarnahorn í kirkjunni.
Kirkjukaffi er eftir hverja messu. Verið velkomin! Við guðsþjónustuna
31. maí verður ferming. Fermd verða: Einar Matthías Ríkharðsson
og Eygló Dís Gísladóttir.
Kirkjupóstur
er sendur út á netföng áhugafólks um safnaðarstarfið
í Gautaborg og nágrenni. Þeir sem vilja fá fréttir
og orðsendingar þá leiðina vinsamlega sendi línu á
kirkjan@telia.com. Starfsemin í A- og S -Svíþjóð
er auglýst gegnum Íslendingafélögin á hverjum
stað. Þjóðhátíðarsamvera miðv. 17
júní kl. 17.00 Á þjóðhátíðardaginn
hittumst við í hátíðarskapi á grasflötinni
fyrir framan safnaðarheimili V-Frölundakirkju kl. 17.00. Söngur,
tónlist, fjallkona, grill og leikir. Góð aðstaða inni
í safnaðarheimili ef á þarf að halda. Nefndina skipa
Bjarni Berg Elfarsson, Guðrún Bragadóttir og Rósa Jónasardóttir.
Verið velkomin!
Kirkjuskólinn í Gautaborg Kirkjuskólinn
er lífleg samvera með söng, fræðslu og leik. Umsjón
með kirkjuskólanum hafa auk prests þau Birna, Júlíus,
María og Rósa. Við hittumst í safnaðarheimili V-Frölundakirkju.
Eftir kirkjuskólann er góð leikaðstaða, hressing fyrir
börnin, kaffi og spjall fyrir fullorðna. Samverur verða: Laugardagar
(til að klippa út og festa á ísskápinn!) 31.
jan. kl. 11 Kirkjuskóli 28. febr. kl. 11 Kirkjuskóli 14. mars
kl. 11 Kirkjuskóli 28. mars kl. 11 Kirkjuskóli 18. apríl
kl. 11 Kirkjuskóli Vorhátíð í Slottskóginum
sun 10. maí kl. 14.00 Hittumst á grasflötinni norðan
við veitingastaðinn Villa Belparc. Íslenski fáninn auðkennir
hópinn. Boðið er uppá grillaðar pylsur og safa. Leikir
og samvera í fögru umhverfi. Verið velkomin!
Fermingarguðsþjónusta
í Skövde Sunnudaginn 7. júní kl. 14.00 Fermingarguðsþjónusta
verður í Skogroskirkjunni í Skövde. Fermd verða: Haukur
Þór Sigurðsson og Kolbrún Schmidt. Kirkjuskólinn
í Lundi Annan hvern laugardag er kirkjuskóli í S:t.
Hans kirkju í Norra Fäladen í Lundi. Kirkjuskólinn í
Lundi stendur fyrir barnmörgum og líflegum samverum með söng,
fræðslu, föndri og brúðum í brúðuleikhúsi.
Umsjón með kirkjuskólanum hafa m.a. Ásta Sóllilja
Sigurbjörnsdóttir (070-282 23 43), Guðrún Rútsdóttir
(076-870 24 24). Prestur heimsækir kirkjuskólann reglulega. Laugardagar
(til að klippa út og festa á ísskápinn!) 24.
jan. kl. 11.00 Kirkjuskóli 7. febr. kl. 11.00 Kirkjuskóli 21.
febr. kl. 11.00 Kirkjuskóli 7. mars kl. 11.00 Kirkjuskóli 21.
mars kl. 11.00 Kirkjuskóli 4. apríl kl. 11.00 Kirkjuskóli 18.
apríl kl. 11.00 Kirkjuskóli Verið velkomin!
Guðsþjónusta
á Skáni sun. 19. apríl Vorhátíðarguðsþjónusta
verður í Arlövs kirkju sunnudaginn 19. apríl kl. 14.00.
Íslenski kórinn í Lundi syngur. Sara Hjort leikur á
orgel. Örn Arason leikur einleik á gítar. Bryndís Bragadóttir
og Rein Ader leika á víólur. Kirkjukaffi í safnaðarheimilinu
í umsjá Íslendingafélagsins í Malmö. Verið
velkomin!
Guðsþjónustur í Stokkhólmi Guðsþjónustur
eru í Finnsku kirkjunni í Gamla Stan, við hlið Hallarinnar:
Pálmasunnudag 5. apríl Kl. 14.00 Guðsþjónusta
ÍSÍS syngur. Ingibjörg Guðlaugsdóttir leikur á
básúnu. Orgelleikur og kórstjórn Brynja Guðmundsdóttir.
Kirkjukaffi. Helgina 13. - 14. júní verður guðsþjónusta
og hátíðahöld í tilefni 17. júní í
samstarfi við ÍSÍS-kórinn og Íslendingafélagið.
Staður og tími nánar auglýstur síðar.
Kóræfingar
ÍSÍS kórsins eru í Finnsku kirkjunni og eru söngelskir
Íslendingar velkomnir. Hafið samband við Karin, formann kórsins
(s. 08-325 774) hakonardottir@hotmail.com
Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera
í Stokkhólmi Í samvinnu við Íslendingafélagið
verður efnt til fjölskyldusamveru mánaðarlega í safnaðarheimili
Danderyd kirkju, Klockargårdsvägen 2. Umsjón með kirkjuskólanum
hafa auk prests, Brynja Guðmunds-dóttir, Margrét Þórdórsdóttir
(s. 070 443 35 64) og Svava Gunnarsdóttir (070 452 62 65). Kirkjuskólinn
er kl. 15.00 með fræðslu, söngvum og leikjum. Bryddað verður
upp á ýmsu fyrir og eftir kirkjuskólann. Veitingar á
hóflegu verði í umsjá Íslendingafélagsins.
Nánar auglýst á www.islendingafelagid.se og póstlista
Íslendingafélagsins. Laugardagar (til að klippa út
og festa á ísskápinn!) 24. jan. kl. 14.30-16.30 Kirkjuskóli
og fjölskyldusamvera 28. febr. kl. 14.30-16.30 Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera 21.
mars kl. 14.30-16.30 Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera 18. apríl
kl. 14.30-16.30 Kirkjuskóli og fjölskyldusamvera ATH. Danderyd
kirkja og safnaðarheimili eru sitthvoru megin við hraðbrautina. Kirkjuskólinn
í Uppsölum Við hittumst annan hvern laugardag í
Tunabergkirkjunni. Helgistund með fræðslu, söng og brúðuleikriti.
Á eftir eru pylsur, ávaxtasafi, kaffi og kex á hóflegu
verði og leikaðstaða fyrir börnin. Umsjón með kirkjuskólanum
hafa Gunnhildur Halla Guðmundsdóttir (s. 018-31 41 63) og Júlíana
Gústafsdóttir (s. 073-390 73 80). Prestur heimsækir kirkjuskólann
reglulega. Laugardagar (til að klippa út og festa á ísskápinn!) 10.
jan. kl. 11.00 7. mars kl. 11.00 24. jan. kl. 11.00 21. mars kl. 11.00 7.
febr. kl. 11.00 4. apríl kl. 11.00 21. febr. kl. 11.00 18. apríl
kl. 11.00 Verið velkomin!
Vorhátíðarguðsþjónusta
í Uppsölum laugardaginn 25. apríl kl. 11.00 Guðsþjónusta
verður í Tunabergskirkjunni laugardaginn 25. apríl kl. 11.00.
Við fögnum sumri og njótum góðs félagsskapar.
Miklll söngur og tónlist ásamt kirkjukaffi. Gunnhildur Halla
Guðmundsdóttir leikur á selló og Ingunn Jónsdóttir
á flautu og Kristín Þórunn Tómasdóttir
á gítar.
Kóramót íslenskra kóra
og tónleikar í Stokkhólmi Kóramót íslenskra
kóra í Norður-Evrópu er haldið á 2ja ára
fresti. Að þessu sinni verður kóramótið haldið
í Stokkhólmi laugardaginn 28. mars. Flestir íslenskir kórar
utan Íslands koma til mótsins. Kórarnir efna til tónleika
í Adolfs Fredriks kirkju laugardaginn 28. mars kl. 17.00. Verið
velkomin!
Guðsþjónusta í Helsinki, Finnlandi Í
samvinnu við Íslendingafélagið í Helsinki og Biskupsstofu
á Íslandi er guðsþjónusta ráðgerð
í marsmánuði í Kapellu Dómkirkjunnar í
Helsinki. Hanna Lundsten leikur á orgel. Kirkjukaffi. Nánar auglýst
síðar á vegum Íslendingafélagsins í Finnlandi. Fermingarfræðsla Í
vetur taka 14 unglingar þátt í fermingarfræðslu
íslenska kirkjustarfsins. Þeir búa dreift um Svíþjóð
og skila verkefnum með tölvupósti. Unglingarnir sækja reglulega
guðsþjónustur í sinni heimabyggð. Allur hópurinn
hittist á fermingarmóti að hausti og vori. Vorfermingarmótið
verður að Åh Stiftgård 8. til 10. maí. Þar tvinnast
saman nám, leikur og skemmtileg samvera. Sr. Arna Grétarsdóttir
prestur Íslendinga í Noregi kemur einnig með hóp unglinga
á mótið. Skráning í fermingarfræðslu
fyrir næsta vetur fer fram í maímánuði. Skráningu
má koma á framfæri með að senda póst á
kirkjan@telia.com eða hringja í prestinn. Haustmótið fyrir
nýjan fermingarhóp verður síðan helgina 25.-27. september.
Kyrrð, kaffi og ljóð í Västra Frölundakirkju Fimmtudaginn
12. mars kl. 19.00 Helgistund verður í kirkjunni með kyrrð,
söng og íhugun. Kaffiveitingar í safnaðarheimili og lestur
íslenskra ljóða. Þátttakendur er velkomnir með
sín uppáhaldsljóð til upplestrar. Verið velkomin!
Vortónleikar
í Gautaborg Íslenski kórinn í Gautaborg heldur
vortónleika laugardaginn 30. maí kl. 17.00 í V. Frölundakirkju.
Fjölbreytt söngdagskrá verður flutt undir stjórn Seth-Reino
Ekström.
Leiðtoganámskeið barnastarfsins Elín
Jóhannsdóttir fræðslufulltrúi á biskupsstofu
á Íslandi kemur til Gautaborgar lau. 12. sept. og heldur námskeið
fyrir leiðtoga í barnastarfi kirkjunnar á Norðurlöndum.
Von er á þátttakendum frá Lundi, Uppsölum, Stokkhólmi,
Gautaborg, Osló og Kaupmannahöfn.
15 ára afmæli
íslenska kirkjustarfsins Íslenska þjóðkirkjustarfið
með höfuðstöðvar í Gautaborg er 15 ára á
þessu ári og er ætlunin að minnast þeirra tímamóta
við hátíðarguðsþjónustu í V-Frölundakirkju
sun. 13. sept. næstkomandi. Nánar auglýst síðar.
Nýja
Testamenti frá Gídeonfélaginu Öll 10 ára
börn á Íslandi fá Nýja testamenti að gjöf
frá Gídeonfélaginu. Gídeonfélagið vill
í samvinnu við Íslensku kirkjuna í Svíþjóð
gefa sem flestum íslenskum börnum í Svíþjóð
íslenskt NT. Unglingum í fermingarundirbúningi hefur undanfarin
ár verið afhent NT frá Gídeon og það er síðan
notað í náminu. Kirkjan vill gjarnan hafa samvinnu um þetta
verkefni við Íslendingafélög og íslenskukennara
til að ná til sem flestra 10 til 12 ára barna.
Sálgæsla Mikilvægt
hlutverk prestsins er að vera einstaklingum stuðningur í erfiðleikum.
Sálræn velferð byggir mjög á því
að deila hugðarefnum sínum með öðrum og byrgja ekki
inni stríðar tilfinningar. Góð, einlæg samtöl
opna oft nýja sýn. Presturinn er bundinn þagnarskyldu. Verið
velkomin að hafa samband.
Ráðgjöf á Skáni Vert
er að vekja athygli á því að á Skáni
er starfandi íslensk kona, Birna Guðmundsdóttir, sem vinnur
við einstaklings- og fjölskylduráðgjöf. Nánari
upplýsingar eru á heimasíðunni: www.terapicentret.se
og sími hennar er 040-53 44 24.
AA - deild - 12 spora deild AA-deildir
eru samtök til sjálfshjálpar fyrir þá sem eiga
við áfengis-/vímuefnavanda að stríða. Reglulegir
fundir samtakanna eru mikilvæg stoð í baráttunni fyrir
betra lífi án vímuefna. Í Kalmar er AA-deild með
síma sem fólk getur hringt í til að komast í samband
við samtökin. Í þeirri deild er Íslendingur sem hefur
áratuga reynslu í að aðstoða fólk í vímuefnavanda.
Síminn er 0480-49 10 49 kl. 08.00 til 20.00.
Til
að lesa skjöl á PDF formi krefst að Adobe Reader er uppsettur
á tölvunni. Ýtið:
til að sækja forritð. Það er til afnota endurgjaldslaust.
|