Hem


Íslenskar athafnir í Svíþjóð


Almennar upplýsingar um útfarir

Með því að smella hér að ofan færðu upplýsingar sem eru á heimasíðu íslensku Þjóðkirkjunnar

Íslensk útför í Svíþjóð

Við missi ástvinar er sorg í huga og hjarta. Mikilvægt er að aðstandendur standi saman og tali um þá atburði sem orðið hafa og leiti styrks hjá hvert öðru. Mikilvægt er að ræða við börnin og passa að þau verði ekki útundan eða afskipt þegar atburðir og tilfinningar eru ræddar. Þegar leita skal til prests er oft eðlilegast að hafa samband við þann prest sem starfar í nálægt heimilinu eða tengsl eru við af öðrum ástæðum. Ef íslenskir aðstandendur vilja leita til prests sem talar þeirra móðurmál, þá er þeim velkomið að leita til íslenska prestsins í Svíþjóð.

Á sama tíma og tekist er á við sorgina kalla ýmis úrlausnarefni á athygli í sambandi við jarðarför. Starfsfólk útfararstofanna er mjög hjálplegt við að aðstoða, en stundum geta tungumálið valdið erfiðleikum, á það sérstaklega við þegar aðstandendur koma frá Íslandi til að ganga frá málum og hafa ekki búið í Svíþjóð.

Ef óskað er eftir því að minningarathöfn eða útför fari fram á íslensku, að hluta eða öllu leyti, þá er hægt að leita til íslenska prestsins í Svíþjóð.

Prestur leitast til að veita Íslendingum í Svíþjóð þá aðstoð sem honum er möguleg. Þér er velkomið að hafa samband.