| Íslenskum ungmennum
stendur til boða að taka þátt í fermingarfræðslu
á vegum Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð.
Fræðslan hefst með fermingarmóti í lok september.
Þar hittast íslenskir unglingar víða að. Auk unglinga
sem búsettir eru í Svíþjóð koma einnig unglingar
frá Noregi og Danmörku með prestunum sínum. Á fermingarmótinu
samtvinnast nám, leikur og skemmtileg samvera. Sjá nánar
um fermingarfræðsluna úndir hnappnum "Dagskrá" Unglingar
sem fara þessa leið geta svo valið um hvort þeir fermist í
Svíþjóð eða á Íslandi. Fermingarmessur
fara fram í Gautaborg, Lundi og Stokkhólmi en einnig má koma
við sérstakri athöfn að ósk fermingarbarns og aðstandenda
þess. |