Öllum Íslendingum í Svíþjóð stendur
til boða að láta skírast á vegum íslenska
safnaðarins. Athafnir geta farið fram hvar sem er að samkomulagi prests
og aðstandenda.
Þegar
prestur skírir barn færir hann skírnarskýrslu og sendir
til Þjóðskrár á Íslandi. Einnig er skýrsla
send til Sænsku kirkjunnar ef foreldrar eru meðlimir hennar. Við
skírn þarf að leggja fram fæðingarvottorð skírnarþega
(personbevis) og má nálgast það á manntalsskrifstofum.
Best er að þar sé nafn barnsins skráð, því
Þjóðskráin á Íslandi skráir nafn
barns eins og það er skráð hér í Svíþjóð. Fólki
ber að hafa í huga að þótt skírn tengist nafngjöf
frá fornu fari, þá er alls ekki um sama hlut að ræða.
Með skírn er barnið (einstaklingurinn) tekið inn í kirkjuna
og þess beðið að blessun Guðs megi aldrei frá því
víkja. Nafngjöf hefur hins vegar farið fram í tengslum
við þá athöfn. .
|