Hem


Á dagskrá

Bókmenntasamverur í Gautaborg

Leshringur um bókmenntir er starfræktur í Gautaborg. Hittst er í heimahúsum. Byrjað var á að lesa bókina Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson og síðan hafa ýmsar bækur verið lesnar og ræddar í hópnum. Leshringurinn er jafnframt umræðuvettvangur um valin viðfangsefni. Þátttakendum er hugleikin sú staða að lifa milli menningarheima, að eiga rætur og líf í tveimur löndum.

Bókaborð

Á söluborði safnaðarins er að finna bækur á íslensku fyrir börn og fullorðna. Einnig geisladiska.

Hér eru nokkrir titlar og verð:
Bækur:
Verð kr
Barnabiblía 150
Biblía 300
Biblía, myndskreytt fyrir börn og fullorðna 200
Biblíusögur barnanna 150
Bænir karla 120
Bænir kvenna 120
Bænirnar mínar 20
Börn og bænir 140
Börn og sorg 150
Börn skrifa Guði 100
Englar hér og þar 140
Faðir vor 20
Huggun í sorg 120
Hver er tilgangurinn 100
Hýbýli vindanna, Böðvar Guðm. 120
ISLAND, myndir og sænskur texti 150
Ísl. kórinn í Gautaborg: Að heiman og heim 100
Ísl. kórinn í Gautaborg: FYRSTI 100
LANDSKAP, myndir og sæ. Texti 350
Leiðsögn um NT 100
Lífsins tré, Böðvar Guðm. 120
Lítið kver um kr, trú 120
Ljós í heimi 150
Orð í gleði 120
Sálmabók ný vínrauð 200
Sálmar í gleði - geislad 150
Skálm - geisladiskur 120
Smábarnabiblía 120
Stef - geisladiskur 120
Sumarlandið 100
Til þín átt um sárt að binda 50
Við tvö - um hjónaband 100
Ævintýri dýranna 150
Ævintýri frá ýmsum löndum 150
Örkin hans Nóa 150

Kristnifræðiefni til íslenskra barna í Svíþjóð

Söfnuðurinn færði íslenskum börnum í Svíþjóð bókagjöf haustið 2002. Í samvinnu við Þjóðkirkjuna og Námsgagnastofnun sendi söfnuðurinn börnunum íslenskt kristnifræðiefni ýmist í samvinnu við íslenskukennara eða beint inn á heimili þeirra sem þess óskuðu.

Bókmenntahópar, biblíuleshópar, helgigöngur... eru viðfangsefni í safnaðarstarfinu sem gaman væri að koma í gang. Látið vita ef þið hafið áhuga á að taka þátt...
Biblíulestrarhópur
Biblían er stundum nefnd bók bókanna vegna útbreiðslu sinnar og áhrifa. Í biblíulestrarhóp myndum við lesa valda kafla, hittast síðan og ræða efnið í góðum hópi. Tilefnið væri að fræðast um Biblíuna og kristna trú í daglegu lífi. Einnig mætti í þessum hópi fjalla um hlutverk kirkjunnar og kristinna manna í nútímanum, en erindisbréf Karls biskups "Í birtu náðarinnar" gæti verið grundvöllur að slíku samtali.

Leshringur um bókmenntir
Trúarlegi þátturinn er miðlægur í starfi íslenska safnaðarins í Svíþjóð. En auk þess hefur safnaðarstarfið þá skýru áherslu að leggja rækt við íslenska tungu og menningu. Leshringur um bókmenntir myndi lesa kiljuútgáfu bókar eftir íslenskan höfund, hittast síðan og skiptast á skoðunum um bókina. Einnig mætti hugsa sér að hafa ljóða- eða tónlistarkvöld í þessum hópi þar sem hver og einn kæmi með sitt uppáhaldsefni.

Hópastarfið gerir ráð fyrir að áhugasamir hittist og eigi saman kvöldstund um verkefnið í heimahúsi. En það má líka hugsa sér að einstaklingar myndi með sér leshóp með hjálp tölvunnar og á netinu.

Helgiganga
Hugmyndin er að tengja saman helgihald og holla hreyfingu/útiveru. Helgiganga er skipulögð gönguferð eftir guðsþjónustu. Þetta væri í öllum tilfellum létt ganga fyrir alla fjölskylduna og það myndi ýta undir skipulagningu slíkar göngu ef áhugi er fyrir hendi.

Þeir sem hafa áhuga á því að standa að slíkum samverum eru hvattir til þess að snúa sér til sr. Ágústs Einarssonar.