- A. Fermingarbúða að
Åh stiftsgård að hausti
og vori, kennsla, útivera og góður félagsskapur.
B. Fermingarbörnin leysa verkefni og senda svörin með tölvupósti
til prestsins. C. Guðsþjónustuþátttaka í
íslenskum guðsþjónustum og/eða hjá sænsku
kirkjunni. D. Fermingarfræðslufundir í Gautaborg, Lundi og
Stokkhólmi eftir því sem við verður komið. Fermingarmótin
á Åh stiftsgård eru mikilvægur upphafs- og lokaþáttur
fermingarfræðslunar og eru þau í september- og maímánuði.
Gott tækifæri gefst til að kynnast og hafa marga kennslutíma
með öllum hópnum. Fermingarmótin hafa undanfarin ár
verið í samstarfi við íslenska prestinn í Noregi,
sem hefur komið með með sinn fermingarbarnahóp. Hóparnir
hafa kennslustundir prestinum sínum, en öll önnur dagskrá
er sameiginleg fyrir hópinn. Skráning í
fermingarundirbúning fer fram í maímánuði ár
hvert, en kennslan hefst með fermingarmótinu í lok september.
Þáttakendur geta síðan valið um það hvort
fermingin fer fram í Svíþjóð eða á Íslandi. Verkefnin
leysa nemendur með aðstoð kennslubókarinnar "Bókin
um Jesú" og Nýja testamentisins. Fermingarbörnin
hafa fengið Nýja testamentið að gjöf frá Gídeonfélaginu
á Íslandi og Nt er mikið notað í verkefnavinnunni. |