Hem


Á dagskrá / Upplýsingar um kirkjuskóla

Í kirkjuskólanum fá börnin mikilvæga fræðslu um Biblíuna sem síðar getur orðið grunnurinn að því hvaða stefnu þau velja í lífinu. Einnig hitta þau íslenska jafnaldra sína og læra íslenska söngva. Vandað efni á góðri íslensku liggur til grundvallar fræðslunni og fá börnin vinnubók með sér heim. Kapp er lagt á að skapa gott samfélag fyrir börn og foreldra. Að lokinni samveru er boðið upp á saft og meðlæti fyrir börnin og heitt er á könnunni fyrir hina fullorðnu.

Á forsíðu eru nánari upplýsingar um tímasetningar kirkjuskólanna, einnig í fréttabréfi kirkjunnar.

Gautaborg
Kirkjuskólinn er í V-Frölundakirkju u.þ.b tvisvar í mánuði. Uppl. og skráning á kirkjan@telia.com
Umsjón:
Birna Ágústsdóttir 07 02 45 37 17
Ágúst Einarsson 070 286 39 69



Lundur
Kirkjuskólinn er annan hvern laugardag kl. 11:00 í S:t Hans kirkjunni við Norra Fäladen.

Umsjón með kirkjuskólanum hafa Ásta Sóllilja (070-282 23 43), Sigrún Harpa ( 076-130 33 57) og Edda Björk.





Uppsalir

Kirkjuskólinn er annan hvern laugardag kl. 11.00 í Tunabergskirkjunni.
Umsjón:
Gunnhildur s. 018 31 41 63