Hem


Velkomin

Presturinn

Sr. Ágúst Einarsson ersóknarprestur Íslendinga í Svíþjóð. Ágúst hefur viðtalstíma á skrifstofu á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10-12 og eftir samkomulagi. Sími á skrifstofu er 031 704 58 91 (frá Ísl. 0046 31 704 58 91) og farsímanúmer 070 286 39 69 (frá Ísl. 0046 70 286 39 69). Skrifstofan er í Frölunda kirkju, Frölunda kyrkogata 2, skammt frá Frölunda torgi.

Ágúst er bæði kennari og prestur að mennt. Var vígður til prestsþjónustu á Raufarhöfn 20. febrúar 1994 og gegndi þar sóknarprestsstörfum í tæp 2 ár. Ágúst var síðan skipaður prestur í Seljakirkju í Reykjavík í desember 1995 og gegndi þar þjónustu uns hann flutti með fjölskyldu sinni til Svíþjóðar sumarið 2002. Veturinn 2002-2003 stundaði Ágúst nám við Gautaborgarháskóla. Aðalviðfangsefni hans var öldrun frá sjónarhorni sálfræði, félagsfræði, líffræði og sálgæslu. Einnig lauk hann námskeiði um kenningar og skipulag sænsku kirkjunnar.

Ágúst hefur lokið steg 1 utbildning i psykoterapi hjá S:t Lukas utbildningsinstitut, en það er fyrra stig náms á sviði sálrænnar samtalsmeðferðar.

Presturinn hvetur Íslendinga í Svíþjóð til að notfæra sér þjónustu Íslensku kirkjunnar. Eitthvað geta fjarlægðirnar á stóru starfssvæði sett strik í reikninginn. En hafið samband og við sjáum hvað hægt er að gera.