Hem


Velkomin

Kirkjur og samkomustaðir
Hér að neðan er að finna samkomustaðina í þeim þremur starfskjörnum sem regluleg starfsemi fer fram.

Gautaborg
Frölunda kyrka:
Kirkjan stendur við Frölunda kyrkogata 2 og er skammt frá Frölunda torgi. Kirkjan stendur á hæð bak við ICA-kvantum í 10 mín göngufæri frá Frölunda torgi. Að Frölunda torgi fara sporvagnar 1, 7 og 8. Auk þess er það skiptistöð fjölda strætisvagna. Vagnar 88, 95 og 771 fara síðan alveg að kirkjunni. Næg bílastæði eru við kirkjuna.
Í Frölunda kirkju er skrifstofa Íslensku kirkjunnar. Þar fer helgihaldið fram og kóræfingar, auk þess sem við höfum góða fundaraðstöðu eftir þörfum.

Lundur/Malmö
S:t Hans kirkjan: Stendur við Fäladstorget í Norra Fäladen.

Stokkhólmur
Finnska kirkjan
Stendur í Gamla stan bakvið Stórkirkjuna og við hlið hallarinnar.

Uppsalir
Tunabergs kyrkan - er í Tunaberg og strætisvagn nr 1 stansar beint fyrir utan kirkjuna.