Þjónustusvæði
Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð er stórt
og við viljum ná tenglum við sem flesta Íslendinga í
þessu víðfema landi. Slíkt er ekki alltaf létt
verk en þakklátt hefur það verið - móttökurnar
sem starfsemin hefur hlotið hafa undantekingalítið verið mjög
góðar. Söfnuðurinn hefur frá upphafi einsett
sér að starfa í samvinnu við þá sem stefna
að svipuðu marki, þ.e. að efla og bæta þetta samfélag
sem hér dvelur og býr. Þeir hópar eru fleiri og fjölmennari
en margan kynni að gruna. Íslendingafélög starfa í
flestum byggðarlögum þar sem Íslendinga er að finna.
Sönghópar og kórar eru starfandi. Þá er hér
að finna vinafélög og einstaklinga sem vilja leggja þessu
starfi lið og skynja hversu mikið hægt er að gera ef menn leggjast
á eitt. Að sama skapi hefur söfnuðurinn notið krafta frábærs
samstarfsfólks sem gera honum kleift að sinna góðum verkefnum
í þágu þessa samfélags. Síðast en
ekki síst ber að geta sendiherrahjónanna og starfsfólks
sendiráðsins sem veitt hafa ómetanlegan stuðning og aðstoð.
Fyrir vikið er óhætt að segja að starfsemin
hafi á sér margbreytilegt yfirbragð enda fjölgar hugmyndum
í réttu hlutfalli við þá sem að málunum
koma. Umfangið hefur því farið vaxandi. Guðsþjónustur
eru reglulega í Gautaborg, Stokkhólmi og Lundi. Við höfum
haft samvinnu við íslenska kóra á þessum stöðum
sem leiða safnaðarsöng og flytja kórverk í hverri guðsþjónustu.
Söfnuðurinn heldur úti kirkjuskólastarfi á þremur
stöðum í landinu, þar sem margar ísl. barnafjölskyldur
er að finna eða í Gautaborg, Uppsölum og Lundi. Fermingarbörn
sækja fræðslu á vegum safnaðarins, fermingarbúðir
eru haust og vor og fjarlægðir eru yfirunnar með bréfasendingum
í tölvupósti. Söfnuðurinn stendur fyrir ýmisskonar
fræðslusamverum og leshópur um bókmenntir er starfandi
í Gautaborg. Hér á þessari heimasíðu
verður hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi safnaðarins.
Óskandi er að þú lesandi góður finnir þér
eitthvað við hæfi. |